júní 26, 2005

Bara ekkert að gerast!!

Ég lýg nú þegar ég segi að það sé ekkert að gerast. Það er meira að segja búið að vera helling að gerast, við Gunni vorum bara bæði barin með letiprikinu svo við höfum ekki skrifað í háa herrans tíð.

Fjölskylda Gunna kom fyrir rúmlega viku og það er búið að vera stanslaust fjör síðan. Við erum búin að fara niður á strönd, niður í bæ, í verslunarferð, í vínsmökkun og lautarferð, bjórsmökkun og síðast en ekki síst í sund og meira sund. Síðan höfum við verið að borða stórsteikur og rennt þeim niður með víni, bjór og kokteilum.

Arndís Dúna tók alla í sátt á fyrsta degi og finnst fátt skemmtilegra en að hanga með genginu.

Á morgun verður stelpu afslöppunardagur, við stefnum á að fara í fótsnyrtingu og í búðir og hvíla okkur milli verslana á kaffihúsum og veitingastöðum, algjörlega barnlausar.

Posted by Solla Beib at 26.06.05 13:29
Comments

Life is a fatal complaint, and an eminently contagious one.

Posted by: fleshlight at 01.07.05 14:39
Post a comment









Remember personal info?