júní 27, 2005

Hele Familien

Jújú, öll fjölskyldan mín eins og hún leggur sig er í heimsókn hjá okkur þessa dagana. Mamma og báðir bræðurnir með fjölskyldurnar, 9 manns í heildina, sæmilegt það. Alveg blússandi stuð á liðinu og því ekki gefist tími til að skrá neitt hér í lengri tíma. Maður hefur annaðhvort verið að hamast með fólkinu eða að vinna upp vinnutapið eftir eitthvað "ham" með þeim.

Það var farið í alveg sparkandi rass vínsmökkun í gær þar sem Firestone og félagar voru heimsóttir. Í stuttu máli sagt stóðu þeir undir væntingum. Þar á undan hefur verið farið reglulega í víking í suðurátt í versl, farið í dýragarðinn, grillað á nánast hverju kvöldi, spilað Settlers og haldið upp á þjóðhátíðardaginn með risaveislu og ýmislegt fleira.

Við Solla erum strax farin að skipuleggja aftvötnunarprógram eftir að fólkið fer, því það hefur tekið sinn toll á kransæðakerfið að éta nautasteik og drekka tonn af bjór og víni á hverju kvöldi. Maður gæti haldið að það værum við sem værum í fríi! Solla hætti sko í vinnunni rétt áður en þau komu og ætlaði að "æfa sig fyrir GRE prófin og leita að annarri vinnu". Einmitt, leita að vinnu í botninum á bjórflösku og læra GRE orðin sem eru á merkimiða grillkjöts!

Rannsóknir mínar hafa reyndar gengið bara ágætlega á meðan á öllu þessu gengur en ég ætla að fara alveg rólega í að fullyrða að mér gangi betur undir áhrifum áfengis því það gæti bara endað illa. Fyrir þá sem hafa áhuga á að vita hvað það er sem ég er að gera, þá mundi ég allt í einu eftir því að ég skrifaði smá pistil um það um daginn þegar ég var að betla einhverja peninga frá einhverjum. Þá verður maður að segja hvað það er voða merkilegt sem maður er að gera og ég læt hér fylgja hlekk á það sem ég hafði fyrir stuttu að segja um mínar rannsóknir .

Hafandi skrifað allt hér að ofan var Solla að segja mér að hún skrifaði færslu fyrr í dag (í gær reyndar, þar sem það var fyrir miðnætti) svo margt hér að ofan er tvítekning á því en whatever, þið verðið bara að þola það.

Posted by gungun at 27.06.05 00:17
Comments

Life is far too important a thing ever to talk seriously about.

Posted by: fleshlight at 01.07.05 14:39
Post a comment









Remember personal info?