desember 11, 2004

Göngum við í kringum...

Á morgun erum við að fara á jólaball í LA. Jólasveinninn er væntanlegur en eitthvað hef ég á tilfinningunni að Arndís Dúna eigi eftir að verða skíthrædd við hann.

Við höfum verið að æfa "Adam átti syni sjö" en það fer mikið eftir skapinu í prinsessunni á bauninni hvort hún tekur undir eða ekki. Vonandi lætur hún ljós sitt skína á morgun.

Jonna bauð okkur að koma í dag og gista í nótt í íbúðinni hennar, þau Bragi eru nefnilega þar um helgina og ætla á ballið á morgun. Þau eru einnig búin að bjóðast til að passa Arndísi Dúnu í kvöld og senda okkur út á lífið í LA.

Við hringdum í Önnu Þorbjörgu og Palla og ætlum að kíkja út með þeim og vinafólki þeirra. Ég er farin að hlakka mikið til, það er sjaldan sem við förum út á kvöldin.

Að lokum má minnast á það að ég var að setja inn myndir frá því í nóvember og byrjun des.

p.s.
Heimilisfangið er:
793 Willow Walk
Apt. A
Goleta, Ca 93117
USA

Posted by Solla Beib at 11.12.04 14:42
Comments