desember 18, 2004

Góður gestur

Óliver hefur verið í heimsókn hjá okkur í nokkra daga, hann ætlaði í upphafi bara að gista í eina nótt en síðan er bara svo gaman hjá okkur að hann vill ekki fara. Við erum mjög ánægð með það, skemmtilegur félagsskapur og síðan er Arndís Dúna mjög hrifin af honum, hann hefur bara hreinlega brætt hana.

Síðasta vika leið mjög hratt, eins og yfirleitt, við vorum mjög upptekin á kvöldin við að pakka inn jólagjöfum og skrifa jólakort. Öll herlegheitin fóru síðan með Oddgeiri í gærmorgun. Hann flýgur til Íslands á mánudaginn og ég verð bara að vona að póstþjónustan nái að koma öllu til skila fyrir jól.

Það er þá ekki mikið eftir í jólastressi, bara nokkrar gjafir og kort innan Bandaríkjanna. Ég vona innilega að mér takist að hafa þetta alveg streitufrí jól :)

Ég var að setja inn myndir frá jólaballinu sem við fórum á síðustu helgi, njótið vel.

Posted by Solla Beib at 18.12.04 06:53
Comments