ágúst 05, 2004

Týndi sonurinn, faðirinn og eiginmaðurinn

Núna höfum við loksins endurheimt Gunna, hann kom síðastliðið föstudagskvöld.

Síðan höfum við bara verið að heimsækja vini og vandamenn og slappa af enda erum við í sumarfríi.

Næstu vikur verða eflaust svipaðar þeirri síðustu nema að ég ætla Norður í nokkra daga (fer á mánudag eða þriðjudag ef einhver hefur áhuga á að koma með).

Arndís Dúna var himinlifandi yfir að sjá pabba sinn, hún var reyndar feimin við hann fyrsta hálftímann eða svo en síðan henti hún sér til hans og kúrði í hálsakotinu.

Posted by Solla Beib at 05.08.04 05:27
Comments

Sæta! Nú bíðum við bara eftir að endurheimta ykkur öll!

Posted by: Vala at 07.08.04 00:58

já gott að kallinn sé kominn!!! Mar er meira að segja búinn að berja drenginn augum ;)

Posted by: Guðný Birna at 09.08.04 05:36

Er einthvað til í því að þið séuð að koma norður?Bara spyr.

Posted by: Amma Dúna at 10.08.04 15:49