febrúar 20, 2004

Shop ´till you drop

Jæja mamma hefur nú aldeilis komist í búðir undanfarið. Hún er nú þegar búin að fjárfesta í 4 pörum af skóm og fleiru skemmtilegu (allt lífsnauðsynlegt auðvitað) á gjafprís.

Mamma hefur nú gefið sér tíma til annars en að versla, hún er búin að kenna Arndísi Dúnu að skríða, við Gunni erum búin að reyna í 9 mánuði að kenna henni þetta og síðan kemur mamma og gerir þetta á 4 dögum. Þvílíkur þjálfari.

Hún er líka farin að kenna Arndísi Dúnu að standa upp, ég þori að veðja að ekki líður á löngu þar til Arndís verður farin að stökkva á fætur í hvert sinn sem hún sér ömmu sína (svoleiðis aginn hjá þeirri gömlu). Mamma hefur líka heitið því að kenna henni að ganga áður en hún fer eftir 3 vikur.

Ég ætti kannski að ráða mömmu sem einkaþjálfara fyrir mig líka.

Posted by Solla Beib at 20.02.04 22:12
Comments

Áfram svona!!

Posted by: Jóna Systir at 22.02.04 13:10