febrúar 16, 2004

Fimmtug uppdópuð amma

Mamma greyið er búin að vera með einhvers konar ofnæmi undanfarið og í dag gaf ég henni ofnæmislyfið Benadryl sem læknirinn mælti með að kaupa þegar ég var ófrísk.

Ég gaf mömmu tvær töflur áðan og ekki leið á löngu þar til hún var farin að slefa af þreytu í sófanum.

Alveg rétt, ein af aukaverkununum getur verið sljóleiki og þreyta.

Núna sefur mamma eins og lítið lamb :)

Hún á líka afmæli í dag, og ekkert ómerkilegt það heldur fimmtugsafmæli.

Til hamingju með afmælið mamma mín, ekki má gleyma að óska ömmu til hamingju með að fæða hana.

Posted by Solla Beib at 16.02.04 12:19
Comments

Til hamingju með mömmu þína
Óskaðu henni til hamingju frá mér :)

Posted by: Oddi at 17.02.04 01:12