maí 27, 2002

Innbrot


Það var brotist inn á skrifstofuna mína í nótt.

Það er reyndar frekar létt verk og löðurmannlegt af því maður þarf bara að klifra yfir vegginn.

Þjófarnir stórgræddu svoleiðis á mér að það hálfa væri nóg. Það er ekki frá því að þeir hafi haft heilan heftara (ógeðslega flottur heftari) og heftaplokkara upp úr krafsinu. Ég gæti trúað að endursöluverð á svona gæðahefturum slagi hátt í 3 dollara, kannski 4 ef þeir harka.

Ég er hálffeginn að þetta gerðist núna því ég ætlaði að geyma allt draslið mitt á skrifstofunni þessa 6 mánuði sem ég verð heima. Núna held ég að ég þori því varla.

Hverjar eru samt líkurnar á því að sé brotist tvisvar inn á sama stað á einu ári?

Posted by Gunnar Gunnarsson at 27.05.02 14:54
Comments