maí 28, 2004

Gangandi snilld

Síðasta miðvikudag var Arndís Dúna heima hjá pabba sínum en hann sendi hana bara í pössun :)

Á meðan pössuninni stóð byrjaði hún að ganga svolítið, gekk fimm skref. Hún hefur síðan verið að ganga nokkur skref en hendir sér þó oftast niður og skríður þegar hún þarf að fara á milli staða.

Við foreldarnir erum náttúrulega að springa af stolti yfir þessum merka áfanga. Bráðum verður reyndar ennþá erfiðara að taka hana með sér út því hún mun væntanlega hlaupa frá manni. Ég ætla einmitt að fjárfesta í beysli fyrir flugferðina heim, langar ekkert til að missa af henni sjónar á flugvelli.

Posted by Solla Beib at 01:17 EH | Comments (428)

maí 17, 2004

1. árs pæja

Í dag hefur Arndís Dúna náð því takmarki að verða 1. árs.

Við héldum upp á það í gær og buðum vinum og vandamönnum úr nágrenninu.

Arndís Dúna var í svakalega góðu skapi enda er fátt sem henni finnst skemmtilegra en að vera í kringum fólk.

Núna kann hún að sýna að hún er eins árs, það gerir hún með því að stinga vísifingri út í loftið þegar hún er spurð um aldur.

Hún segir líka hæ, byrjaði á því fyrir nokkru.

Posted by Solla Beib at 12:37 EH | Comments (110)