maí 22, 2005

Afmælisveisla

Við héldum smá afmælisveislu til heiðurs Arndísar Dúnu í bakgarðinum í gær.

Aðalstjarnan lék á alls oddi, fannst ekki beint leiðinlegt að fá bæði alla athyglina og alla pakkana, "mamma open it" voru orð dagsins.

Ég setti inn myndir frá afmælinu, þið getið kíkt á þær hér.

Dagurinn í dag var öllu rólegri en í gær en þó afskaplega notalegur.

Í morgun fórum við á ströndina, við Arndís, Ilana og Gabriel lékum okkur í sandinum á meðan Gunni og Nick fóru á brimbretti. Veðrið var frábært, krakkarnir hlupu um á bleyjunum og sulluðu í læk sem streymir úr lóni þarna við rétt hjá.

Á meðan Arndís svaf talaði ég í símann, held ég hafi örugglega eytt 2 tímum í símanum, en Gunni fór að horfa á körfuboltaleik.

Eftir lúrinn hófum við að setja saman hús sem við Gunni gáfum Arndísi í afmælisgjöf. Arndís Dúna reyndi að hjálpa til og við reyndum að láta hana leika sér annars staðar :)

Myndir frá deginum í dag má sjá hér.

Posted by Solla Beib at 22.05.05 21:14
Comments