nóvember 11, 2004

Hreinn bætist við fjölskylduna

Um daginn stóð ég við eldhúsvaskinn og bölvaði þessum uppþvotti. Eftir dágott bölv fór ég á netið og leitaði að uppþvottavél sem setja má á eldhúsbekk.

Núna er Hreinsi kominn á heimilið, við tókum vel á móti honum þegar hann kom í gærkveldi og í dag fékk hann að fara í sitt fyrsta bað. Útlitslega minnir hann mig mikið á Öbbu örbylgjuofn en Hreinsi er þó nokkuð stærri.

Við hlökkum mikið til að eyða framtíðinni með Hreinsa, hann verður stór og góður hluti af fjölskyldunni hér eftir.





Við erum líka búin að setja inn fleiri myndir.

Posted by Solla Beib at 11.11.04 20:54
Comments

Til hamingju með Hreinsa! Hann á eftir að koma sér vel á jólunum... Rosa fínar myndir, við Óliver erum alveg hlessa á hvað Arndís Dúna er orðin fullorðin, greinilegt að við þurfum að fara að kíkja í heimsókn ;)

Posted by: Vala at 11.11.04 22:18

Það er nú ekki laust við að ég öfundi ykkur all svakalega af þessari græju!!

Til hamingju með að vera komin með Hreinsa!

Posted by: Hulda at 12.11.04 07:33

ó já - svona græja er alveg himnasending. Við Hjölli erum nýbúin að fjárfesta í einni slíkri og þetta er minn besti vinur!!
Til hamingju með Hreinsi!!

Posted by: Guðrún K. at 12.11.04 12:55

Velkominn í familíuna Hreinsi ;)

Posted by: Guðný Birna at 14.11.04 10:38