apríl 07, 2004

Nýr frændi

Það er nú komin vika síðan maður kom frá Hawaii og lífið er að detta í fastar skorður.

Við erum með gest hjá okkur þessa dagana en hann Baldur sem ég vann einu sinni með í Decode er hér að skoða stærðfræðideildina. Á morgun á að draga hann í sörfið en það eiga víst að vera allhrikalegar öldur á morgun. Vonandi að maður geri ekki ljótt í gallann af hræðslu.

Annars eru stærstu fréttirnar þessa dagana að Bjarni bróðir og Rósa konan hans eignuðust sinn annan son í gær (6. apríl). Tölur drengsins eru 52 cm. og 3.310 grömm og hann hefur hlotið nafnið Oddi Grétar. Þrælfínt nafn að mínu mati. Þeir verða flottir bræðurnir, Uggi og Oddi. Bjarni benti mér á það að Oddi er sjaldgæfara nafn en Uggi, sem mér þykir furðulegt. Annars eru myndir af nýja gaurnum og bróður hans hér.

Til hamingju foreldrar.

Posted by gungun at 07.04.04 19:16
Comments

Til hamingju með frændan.

Posted by: Dúna at 08.04.04 08:25

Til hamingju !!

Nú þegar Björg er búin að eiga verður e-r að fylla upp í skarðið.. Solla er ekki kominn tími á þig aftur..?!

Posted by: Hrafnhildur Dóra at 12.04.04 06:37