mars 05, 2004

Coahella

Ég gat nú ekki látið mig vanta á Coahella tónleikana svo ég fjárfesti í miðum í dag. Ég ætla reyndar bara að fara annan daginn en þá næ ég að sjá Radiohead, Pixies, Kraftwerk og helling af öðrum hljómsveitum sem ég veit lítið um.

Ég hef verið að eyða svo miklum peningum í skemmtanir undanfarið, örugglega meira en á öllu síðasta ári. Ég er nefnilega líka á leiðinni á þorrablót með Jonnu og Braga. Ég vona bara að þeir spili gömlu dansana svona eins og á alvöru þorrablóti.

Posted by Solla Beib at 05.03.04 11:06
Comments

hey... þessir Pixies eru líka með tónleika á Íslandi 26. maí að ég held... hvaða hljómsveit er þetta eiginlega? geturðu nefnt e-r lög...?

Posted by: Fanney litla at 06.03.04 10:14

og Kraftwerk líka... Þetta er alveg ótrúleg tilviljun!

Posted by: Fanney litla at 06.03.04 10:16

Hæhó! Hvernig var þorrablótið? Þokkalega er ég orðin spennt fyrir Coachella, er búin að kaupa miða á tjaldstæðið og allt. Rokk on!

Posted by: Vala at 14.03.04 09:58