júní 08, 2002

Búinn í prófum


Ég var að koma úr eina lokaprófinu mínu. Þetta gekk ágætlega fyrir utan að ég eyddi ca. tveimur klukkutímum í að reyna að sanna eitthvað án árangurs.

Eftir prófið fór ég og ræddi við kennarann og þá kom í ljós að lausnin hans var vitlaus og nú er hann ekki einu sinni viss um hvort það sem hann spurði um er satt eða ekki!

Þetta er sami kennari og olli óþarfa olnæternum hjá mér um daginn svo hann er ekki beint í uppáhaldi hjá mér þessa dagana. Ég ætla nú samt í veislu heim til hans á morgun því hann veitir víst vel (gamla góða stúdentasjónarmiðið!).

Posted by Gunnar Gunnarsson at 08.06.02 16:38
Comments