júní 09, 2002

Flutt að heiman

Núna er ég komin í mína eigin íbúð, það var reyndar mjög gott að búa hjá tengdó því þau eru svo ljúf en það er samt alltaf skemmtilegra að vera með sína eigin íbúð.

Við Stella og Stjáni erum aftur orðin nágrannar því ég bý í sömu götu og ég fór í kaffi til þeirra áðan, kaffið hennar Stellu bragðast vel sem fyrr:)

Þá er bara að bíða eftir prinsinum, það er nú bara rétt rúmlega vika þangað til hann lætur sjá sig.

Posted by at 09.06.02 12:21
Comments