SOLLA BEIB
Sólveig Kristín Sigurðardóttir heiti ég og er 25 ára gömul.
Ég bý í Kaliforníu ásamt eiginmanni mínum Gunnari Gunnarssyni en hann stundar nám við UCSB Ég er sjálf ekkert að gera í augnablikinu nema að bíða eftir erfingjanum en ég á von á mér í maí. Ég útskrifaðist nú í febrúar úr Umhverfis- og byggingarverkfræði við HÍ.
Ef þú vilt hafa samband við mig, þá er það hægt í tölvupósti sollasig@hotmail.com
Ég er að Norðan, nánar tiltekið úr Ystu-Vík í Grýtubakkahreppi,
Suður-Þingeyjarsýslu.
Fjölskylda mín í hnotskurn
- Pabbi
-
Sigurður Hólmgrímsson, hann er bóndi í Ystu-Vík, reyndar kominn á
eftirlaunaaldurinn þannig að hann er nú eiginlega bara hobbý bóndi núna.
Hann les mikið og hlustar á útvarpið og svarar flestum spurningum í Trivial
Pursuit þegar aðrir eru að spila en neitar þó að vera með.
- Mamma
-
Guðrún Jónína Eiríksdóttir, hún býr á Akureyri ásamt Þresti manninum
sínum. Hún var að vinna á elliheimili við aðhlynningu.
- Sigga Magga
-
Sigríður Margrét er elsta systir mín, hún á hollenskan mann hann Stip og
yndislega dóttur sem heitir Lara og lítinn strák sem ég hef aldrei séð :( sem
heitir Roman Darri.
Sigga Magga og Stip eru báðir kennarar og verða því seint rík:)
- Jóna
-
Jóna Bergþóra er næstelsta systir mín, hún býr í Reykjavík ásamt manni sínum,
Ólafi og dóttur, henni Álfheiði Unu. Þau eru nýlega komin frá Bandaríkjunum
þar sem Óli var í námi í einhvers konar margmiðlun og grafík.
- Laufey
-
Laufey Björg er ári eldri en ég, hún á kærasta, sem heitir
Kjartan og er vinur Gunna míns, how convenient:) Þau eru búin að kaupa sér
íbúð í Reykjavík og eru á góðri leið með að vinna lífsgæðakapphlaupið.
Laufey er förðunarfræðingur og hefur verið að vinna í leikhúsunum en ákvað
nú í haust að setjast á skólabekk og er nemandi í Iðnskólanum í Reykjavík.
Kjartan vinnur sem tölvunarfræðingur fyrir Landsbankann.
- Fanney
- Jónasína Fanney er yngsta systir mín, hún er sex árum yngri en ég. Hún á kærasta sem heitir Sverrir og þau eru bæði í Menntaskólanum á Akureyri og munu útskrifast þaðan í vor.