GUNNI BEIB
Sælt veri fólkið, Gunnar Gunnarsson heiti ég, og ég er doktorsnemi í stærðfræði við UCSB, University of California Santa Barbara. Svona fyrir þá sem ekki þekkja mig þá er ég fæddur 1977 og er 190cm á hæð. Ég er ljóshærður með eindæmum jafnt að innan sem utan og var yfirleitt talinn grannur en er stundum líst sem feitasta mjóa manni í heimi vegna óhóflega stórrar bumbu. Þeir sem vilja vita meira um mig geta lesið CV-ið mitt.
Ég á þessa líka fínu konu, sumir myndu segja bestu konu í heimi, hana Sollu, sem einmitt er hugmyndasmiður þessarar líka ágætu heimasíðu. Við Solla eigum von á stúlkubarni í maí 2003.
Ég á líka fjölskyldu og hér er hún í hnotskurn:
- Arndís E. Bjarnadóttir (Gamla):
-
Mamma vinnur á leikskóla í Breiðholtinu. Hún er ofurduglegur bakari og bakar bestu kökur í heimi. Hún hefur mjög gaman að börnum og þá helst barnabörnum sínum.
- Bjarni Gunnarsson (Bjarni bróðir):
-
Bjarni er hugbúnaðarverkamaður hjá Landsbanka Íslands. Hann er útskrifaður Kerfisfræðingur frá TVÍ sem nú heitir víst Háskólinn í Reykjavík. Bjarni er mikill jeppakarl og á risastóran Land Rover með einkanúmerinu "Ýktur".
Hann á konu sem heitir Rósa Maggý og þau eru nýlega búin að eignast lítinn son sem heitir Uggi Gunnar.
- Þórir Gunnarsson:
- Þórir er einnig hugbúnaðarverkamaður en hann starfar hjá fyrirtækinu Flexus sem er einmitt í eigu hans og nokkurra annarra. Einnig á Þórir hugbúnaðarfyrirtækið Doddi ehf. sem er í dvala þessa stundina (sumir segja að það hafi ekki orðið risastórt nafnsins vegna en maður veit aldrei). Þórir er giftur henni Svandísi og þau eiga synina Aron Inga og Sindra Stein.