desember 27, 2003

Hangiket

Jóladagur var ansi skemmtilegur, hangikjötið frá KEA var alveg ótrúlega gott, man bara varla eftir að hafa fengið svona gott hangikjöt í mörg ár.

Jafningurinn var með óhefðbundu sniði í ár. Jonna sagði mér að setja eggjapúns í hann í staðinn fyrir mjólk, sykur og salt. Hann bragðaðist mjög vel en var svolítið öðruvísi en ég hef vanist, mér fannst svolítið eins og það væri áfengisbragð af honum sem var mjög skrítið þar sem eggjapúnsinn var óáfengur.

Jonna kom með eftirmat, pönnsur með rjóma og ég lagaði heitt súkkulaði til að drekka með, afskaplega gott allt saman.

Eftir matinn spiluðum við Scrabble, Gunni vann og ég varð í síðasta sæti, mér hefur sjaldan gengið jafn illa.

Posted by Solla Beib at 27.12.03 14:42
Comments