ágúst 26, 2001

Sunnudagsbíltúr og kaffihlaðborð

Í dag fórum við í heimsókn til Völu og Ólivers en þau búa í bæ sem heitir Pasadena og er á stór LA svæðinu. Yfirskyn þessarar ferðar var að sækja ferðatöskurnar sem við keyptum fyrr í mánuðinum og geymdum hjá henni Völu en auðvitað vildum við nú mest hitt þau skötuhjúin.

Vala og Óliver tóku vel á móti okkur eins og þeim er einum lagið og buðu upp á íslenskt bakkelsi, flatkökur með reyktum silungi og kleinur, Óliver var nefnilega að koma frá Fróni í gær. Þau buðu einnig upp á bland í poka, sterka mola og lakkrís. Þetta var eins og að komast í gullnámu og ég finn bragðið ennþá uppi í mér :)

Eftir kaffidrykkjuna fórum við eina ferð í nýju íbúðina þeirra með dót og skoðuðum hana og einnig nýju tölvuna sem þau keyptu í morgun, ég varð nú bara smá öfundsjúk því hún var svo miklu öflugri en okkar Gunna tölva, en í staðinn kemur að okkar er líka handhægari og ég get setið hér í hægindastól og pikkað á hana.

Það var síðan spjallað og slappað eftir "alla þessa flutninga" og síðan fórum við út að borða á ofboðslega góðum tælenskum veitingarstað og ég er ennþá södd.

Ég þakka Völu og Óliver aftur fyrir mig, þið eruð höfðingar :) Það er samt aldrei að vita nema þið fáið eitthvað gott næst þegar þið komið, kannski pönnsur eða eitthvað :)

Í morgun áður en við lögðum af stað lokaði Gunni hurð á tánna á mér (hann náði mér ekki allri) og hluti af nöglinni rifnaði upp. Þetta var nú svona frekar sársaukafullt en ég vona bara að ég geti verið í íþróttaskóm á morgun því ég er að fara út að hlaupa með nokkrum vinum mínum, það gæti orðið svolítið óþægilegt að hlaupa í sandölum :)
Myndir frá þessum skemmtilega degi má sjá HÉR eða á myndasíðunum.

Posted by at 26.08.01 23:36
Comments