Í dag er ég búin að vera svolítið dugleg að læra, auðvitað ekki nógu dugleg (hvenær er maður það) en ég komst samt yfir alveg slatta af námsefni.
Við fórum síðan í jólaglögg til danskrar stelpu sem heitir Anna Louise. Það var mjög notalegt, hún var búin að baka kanilsnúða og gyðingakökur og það er alltaf gott að drekka smá áfengi, hvort sem það er heitt eður ei :)
Litlu jólin tókust líka vel hjá okkur í gær, við skemmtum okkur vel eins og venjulega og höfðum pizzu í matinn, hvað gæti líka verið jólalegra en Dominos pizza??
Posted by at 09.12.01 23:22