júní 19, 2002

Vinna, vinna


Upphaflega ætlaði ég að byrja að vinna á mánudaginn. Aðalástæðan fyrir því var að ég var svo hræddur um að vera alveg ónýtur út af tímamismuninum. Hann virðist ekki hrjá mig eins mikið og ég bjóst við svo ég fór niður í Erfðagreiningu áðan og spurði hvort ég gæti ekki bara byrjað á morgun. Þeir tóku bara vel í það og ég mæti alveg eiturhress klukkan níu í fyrramálið á einhvern byrjendakúrs í erfðafræði, jibbí.

Posted by Gunnar Gunnarsson at 19.06.02 09:57
Comments